Skilmálar
Hér er það helsta sem gott er að vita um Baró og áskriftina, á mannamáli.
Síðast uppfært 22. október 2026.
Hver rekur Baró?
Mikael Snorrason
Netfang: info@baroapp.is
Áskriftin
- Áskriftin opnar allt í appinu: happy hour, tilboð, kortið, karókí og trúbador og dagskrána.
- Fyrstu 30 dagarnir eru fríir ef þú hefur ekki prófað áður. Eftir það kostar áskriftin 1.490 kr. á mánuði (með VSK). Verðið sem þú sérð í appinu áður en þú kaupir er það sem gildir.
- Þú kaupir áskriftina í appinu og borgar í gegnum Apple (App Store) eða Google (Google Play). Um greiðsluna gilda líka skilmálar þeirra.
- Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa einu sinni í mánuði þangað til þú segir henni upp.
Uppsögn og endurgreiðsla
- Þú getur sagt upp hvenær sem er í stillingunum á Apple- eða Google-aðganginum þínum. Gerðu það í síðasta lagi sólarhring áður en tímabilið klárast, annars endurnýjast það. Svona segirðu upp.
- Ef þú segir upp á fríu dögunum er ekkert rukkað.
- Þegar þú segir upp geturðu notað Baró út tímabilið sem þú ert búin/n að borga fyrir.
- Apple og Google sjá um endurgreiðslur. Ef eitthvað er að, sendu okkur línu og við hjálpum þér.
Upplýsingarnar í appinu
- Happy hour, verð og tilboð koma frá börunum sjálfum. Við gerum okkar besta til að allt sé rétt, en barir geta breytt tilboðunum sínum án fyrirvara. Ef þú ert í vafa, spurðu barþjóninn.
- Baró selur ekki áfengi. Áfengi er ekki selt yngri en 20 ára á Íslandi. Farðu vel með þig.
Ef appið liggur niðri
Við reynum að hafa Baró alltaf í lagi, en stundum getur eitthvað klikkað. Ef appið virkar ekki í langan tíma og þú ert að borga, hafðu samband og við finnum út úr því.
Breytingar
Ef við breytum skilmálunum eða verðinu látum við vita í appinu áður en það tekur gildi. Ef verðið hækkar spyrja Apple eða Google þig fyrst hvort þú viljir halda áfram.
Fyrir iPhone gilda líka almennir notendaskilmálar Apple (EULA).