Baró

Persónuvernd

Við viljum vita sem minnst um þig. Við tökum bara það sem þarf til að halda utan um áskriftina þína, staðsetningin þín fer aldrei frá símanum og við seljum aldrei upplýsingar um neinn.

Síðast uppfært 22. október 2026.

Hver erum við?

Ábyrgðaraðili: Mikael Snorrason
Netfang: baroappiceland@gmail.com

Þegar þú notar appið

Aðrir sem koma við sögu

Ef þú ert með Baró-aðgang

Þá geymum við netfangið þitt og lykilorðið, og lykilorðið er geymt þannig að enginn getur lesið það, ekki einu sinni við. Netfangið notum við bara til að skrá þig inn og láta þig vita ef eitthvað mikilvægt kemur upp. Aldrei í auglýsingar.

Núna, á meðan þetta er bara prufa, er lykilorðið hvorki sent né geymt og innskráningin er bara vistuð hjá þér í símanum.

Við geymum upplýsingarnar á meðan aðgangurinn er virkur og eyðum þeim þegar þú biður um það. Sendu okkur bara línu á baroappiceland@gmail.com.

Þegar þú skráir barinn þinn

Þá þurfum við nafn barsins, kennitölu fyrirtækisins, nafn tengiliðar, netfang og símanúmer. Það er það sem þarf til að halda utan um áskriftina og geta haft samband.

Greiðslur

Áskrift í appinu: Apple eða Google taka við greiðslunni. Við fáum bara að vita hvort áskriftin er virk og hvenær hún endurnýjast. Þú segir henni upp í stillingunum í símanum.

Barir: Barir borga á vefnum í gegnum greiðslufyrirtæki. Kortið er sett inn á öruggri síðu hjá þeim, ekki hjá okkur, og við sjáum aldrei kortanúmerið. Við fáum bara að vita hvort greiðslan gekk, hvernig kort þetta er og síðustu fjóra stafina. Greiðslurnar fyrir bari eru ekki tengdar enn, svo það er bara prufa og ekkert er rukkað.

Hvaðan við fáum upplýsingarnar um barina

Þetta eru upplýsingar um fyrirtæki, ekki um fólk. Ertu með bar og vilt að við breytum eða tökum eitthvað út? Hafðu bara samband og við lögum það.

Þinn réttur

Þú mátt alltaf fá að vita hvað við vitum um þig, láta laga það eða eyða því, og andmæla því hvernig við notum það. Sendu okkur bara línu á baroappiceland@gmail.com. Ef þér finnst við ekki fara rétt með upplýsingarnar þínar geturðu líka leitað til Persónuverndar.

Ef eitthvað breytist

Ef við breytum því hvernig við förum með upplýsingar uppfærum við þessa síðu og dagsetninguna efst.

Aftur í BaróHjálp