Baró

Hjálp

Hæ! Hér finnurðu svör við því sem fólk spyr okkur oftast um. Ef svarið er ekki hér, sendu okkur bara línu og við svörum eins fljótt og við getum.

Hafa samband: info@baroapp.is

Ef eitthvað er að stríða þér, segðu okkur endilega hvaða síma eða tölvu þú ert að nota. Þá er auðveldara að hjálpa.

Að nota Baró

Er happy hour örugglega í gangi?

Tímarnir og verðin koma beint frá börunum sjálfum, og bara frá þeim sem eru með okkur. Við tökum ekkert af öðrum síðum og búum aldrei neitt til. En barir eiga það til að breyta tilboðunum sínum án fyrirvara, svo ef þú ert í vafa er bara um að gera að spyrja barþjóninn. Skál!

Af hverju sé ég ekki happy hour hjá sumum börum?

Happy hour og tilboð birtast bara hjá börum sem eru komnir á Baró og setja þau inn sjálfir. Hinir barirnir eru samt á kortinu, svo þú sérð hvar þeir eru og hvað er langt í þá.

Hvernig virkar „Næsti bar“ á kortinu?

Bankaðu bara á bar á kortinu, þá sérðu happy hour dagsins og hvað er langt í næstu bari. Fjarlægðin er mæld í beinni línu, svo labbið er oftast aðeins lengra. Labbtíminn er bara gróf ágiskun (um 80 metrar á mínútu).

Af hverju vill appið vita hvar ég er?

Bara ef þú ýtir á „Hvar er ég?“ eða opnar „Nálægt mér“. Staðsetningin er notuð í símanum þínum til að sjá hvað er langt í barina, og hún er ekki send til okkar. Þú getur slökkt á þessu í stillingunum hvenær sem þú vilt.

Hvað kostar Baró?

Fyrstu 30 dagarnir eru fríir. Eftir það kostar áskriftin 1.490 kr. á mánuði. Þú kaupir hana í appinu sjálfu og greiðir í gegnum Apple (App Store) eða Google (Google Play), eftir því hvaða síma þú ert með. Við sjáum aldrei kortið þitt.

Hvernig segi ég upp áskriftinni?

Þú segir upp í símanum sjálfum, ekki hjá okkur, því Apple og Google sjá um greiðslurnar.

iPhone: Opnaðu Stillingar (Settings), ýttu á nafnið þitt efst og svo Áskriftir (Subscriptions). Veldu Baró og ýttu á Hætta við áskrift (Cancel Subscription).

Android: Opnaðu Google Play, ýttu á myndina af þér efst í horninu, svo Greiðslur og áskriftir (Payments & subscriptions) og Áskriftir. Veldu Baró og ýttu á Segja upp (Cancel).

Gerðu það í síðasta lagi sólarhring áður en tímabilið klárast. Ef þú segir upp á fríu dögunum er ekkert rukkað, og þú getur samt notað Baró út tímabilið sem þú ert búin/n að borga fyrir.

Ég fékk nýjan síma. Þarf ég að borga aftur?

Nei. Sæktu appið, opnaðu „Prófa frítt“ og ýttu á „Endurheimta kaup“. Notaðu sama Apple- eða Google-aðgang og þegar þú keyptir.

Ég vil fá endurgreitt

Apple og Google sjá um endurgreiðslur, svo þú sækir um hjá þeim: á reportaproblem.apple.com fyrir iPhone, eða í Google Play undir Greiðslur og áskriftir fyrir Android. Ef eitthvað er óljóst, sendu okkur bara línu og við hjálpum.

Get ég eytt aðganginum mínum?

Já. Sendu okkur línu á info@baroapp.is frá netfanginu sem þú notar og segðu að þú viljir eyða aðganginum. Við eyðum honum og staðfestum í tölvupósti. Mundu að segja líka upp áskriftinni í símanum, því það er gert hjá Apple eða Google.

Ég gleymdi lykilorðinu, hvað geri ég?

Engar áhyggjur! Sendu okkur línu á info@baroapp.is og við reddum þessu. Bráðum geturðu líka fengið innskráningarhlekk sendan í tölvupósti.

Virkar appið á mínu neti?

Já, alveg örugglega! Það skiptir engu hvort þú ert á Wi‑Fi heima, á barnum eða bara á 4G eða 5G í símanum. Appið virkar alls staðar þar sem þú nærð sambandi, sama hjá hvaða símafyrirtæki þú ert.

Er eitthvað rangt eða úrelt?

Takk kærlega fyrir að láta vita! Sendu okkur línu á info@baroapp.is með nafni barsins og hvað er að. Við tölum við barinn og lögum það.

Fyrir bari

Hvernig kem ég barnum mínum á Baró?

Þú skráir barinn hér á vefnum, undir Fyrir bari. Fyrstu 30 dagarnir eru fríir og við rukkum ekkert á meðan.

Hvernig borga ég?

Barir skrá sig og borga hér á vefnum. Þú setur kortið inn á öruggri síðu hjá greiðslufyrirtæki, svo við sjáum aldrei kortanúmerið og geymum það ekki. Eins og er erum við ekki búin að tengja greiðslurnar fyrir bari, þannig að það er bara prufa og ekkert er rukkað.

Hvað gerið þið við upplýsingarnar mínar?

Þú finnur allt um það á persónuverndarsíðunni. Í stuttu máli: við notum upplýsingar um tengiliðinn bara til að halda utan um áskriftina, og við birtum þær ekki.

Get ég breytt eða tekið út upplýsingar um barinn minn?

Já, ekkert mál! Sendu okkur línu á info@baroapp.is með nafni barsins og hvað þú vilt breyta.

Í hófi

Áfengi er ekki selt yngri en 20 ára. Farðu vel með þig og komdu heil/l heim.

Aftur í BaróPersónuvernd